Eignastýringarsvið
Eignastýringarsvið Arion banka, ásamt dótturfélögum, er leiðandi í eignastýringu á Íslandi með um 985 milljarða króna í stýringu. Sviðið skiptist í eignastýringu fagfjárfesta, einkabankaþjónustu, fjárfestingarþjónustu og rekstur lífeyrissjóða. Eignastýring Arion banka stýrir fjármunum fyrir hönd viðskiptavina samkvæmt fyrirfram ákveðinni fjárfestingarstefnu hvers og eins. Jafnframt annast sviðið sölu á sjóðum Stefnis hf. til einstaklinga, fyrirtækja, stofnana og fagfjárfesta sem og sölu á sjóðum alþjóðafyrirtækja. Til viðbótar sinnir sviðið rekstri lífeyrissjóða. Framkvæmdastjóri sviðsins er Margrét Sveinsdóttir.
Fjölbreytt þjónusta til að mæta ólíkum þörfum
Eignastýringarsvið sérhæfir sig í að veita viðskiptavinum með ólíkar fjárfestingarþarfir fjölbreytt úrval ávöxtunarmöguleika. Áhersla er lögð á breitt vöru- og þjónustuframboð þar sem hagsmunir viðskiptavina eru ávallt hafðir að leiðarljósi. Eignastýringarsvið hefur á að skipa starfsfólki með áratugareynslu og þekkingu af fjármálamörkuðum og eignastýringu. Lögð er áhersla á persónulega þjónustu byggða á góðri samvinnu. Þannig er lagður grundvöllur að traustu langtímasambandi við viðskiptavini og fjárhagslegum ávinningi þeirra.
Þægilegri bankaþjónusta
Á árinu litu dagsins ljós sjóðfélagavefir lífeyrissjóða í rekstri Arion banka sem kallast einfaldlega Mínar síður. Þessar síður fela í sér mikinn ávinning, bæði fyrir viðskiptavini og bankann og eru hluti af stafrænni stefnu bankans og þróun í þá átt að einfalda ferli og auka aðgengi að upplýsingum á þægilegan og fljótlegan hátt.
Á Mínum síðum geta sjóðfélagar meðal annars fengið yfirlit yfir stöðu, gert breytingar á samningi, tilkynnt um nýjan launagreiðanda, sótt um útgreiðslur, afþakkað pappírsyfirlit auk þess sem verðandi sjóðfélagar geta gert nýja samninga. Aðgerðir eru framkvæmdar í örfáum skrefum og lýkur flestum með rafrænni undirritun. Viðtökurnar frá því að Mínar síður fóru í loftið hafa verið umfram væntingar en nú er svo komið að um fjórðungur allra aðgerða sem hægt er að framkvæma á sjóðfélagavef fara þar í gegn.
Á árinu var jafnframt virkjuð ný þjónusta sem snýr að verðbréfaviðskiptum þar sem viðskiptavinir Arion banka geta átt viðskipti með hlutabréf á þægilegri hátt í netbankanum. Þjónustan breyttist töluvert þar sem nú er hægt að kaupa og selja hlutabréf í rauntíma með beintengingu við Kauphöll Íslands. Ferlið varðandi sjóðaviðskipti var bætt til muna ásamt því að upplýsingagjöf um ávöxtun og eignasamsetningu var aukin. Er þessi breyting í takt við stafrænar áherslur bankans til hagræðingar og þæginda fyrir viðskiptavini.
Frá árinu 2013 hefur sala verðbréfa-sjóða Stefnis hf. í netbankanum átjánfaldast.
Mikil aukning var í sölu verðbréfasjóða Stefnis hf. í netbankanum, en salan þrefaldaðist á milli ára. Frá árinu 2013 hefur salan í netbankanum hins vegar átjánfaldast sem gefur til kynna áhuga á verðbréfasjóðum og vilja til að nýta sér stafrænar leiðir.
Samfélagsábyrgð og ábyrgar fjárfestingar
Starfsemi eignastýringar byggist á trausti og ábyrgð gagnvart haghöfum og samfélaginu í heild. Sem leiðandi afl í eignastýringu tekur Arion banki ábyrgðarhlutverk sitt alvarlega og hefur í samræmi við það markað sér stefnu í því að byggja upp þekkingu á sviði ábyrgra fjárfestinga. Þekkingin er nýtt til að fræða, upplýsa og aðstoða viðskiptavini þar sem við á í að útfæra stefnu gagnvart sjálfbærum og ábyrgum fjárfestingum hvað varðar umhverfis-, samfélagsmál og stjórnarhætti.
Í samræmi við stefnu um uppbyggingu þekkingar á sviði ábyrgra fjárfestinga stóðu eftirfarandi atriði upp úr á árinu hjá eignastýringu Arion banka:
|
|
|
|
|
|
Áframhaldandi góður árangur Frjálsa lífeyrissjóðsins
Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem er í rekstri hjá Arion banka, var valinn besti lífeyrissjóður Evrópu í sínum stærðarflokki af hinu virta fagtímariti Investment & Pension Europe (IPE). Undanfarin ár hefur sjóðurinn hlotið ellefu alþjóðleg verðlaun en það er mesti fjöldi verðlauna sem íslenskum lífeyrissjóði hefur hlotnast.
Áframhaldandi ávinningur viðskiptavina
Í kjölfar afléttingar fjármagnshafta á árinu opnuðust á ný tækifæri erlendis fyrir fjárfesta. Arion banki býður upp á sjóði í erlendri mynt sem fjárfesta erlendis og er stýrt af Stefni hf., en Stefnir hefur starfrækt sérhæft teymi um stýringu erlendra sjóða allt frá árinu 1998. Að auki er Arion banki í samstarfi við og veitir viðskiptavinum sínum aðgang að sjóðum nokkurra af stærstu sjóðastýringarfyrirtækjum heims.
Framundan er innleiðing á MiFID II tilskipun Evrópusambandsins og MiFIR-reglugerð á íslenskum verðbréfamarkaði sem mun leiða til breytinga á starfseminni. Markmiðið er að nýta þessar breytingar til hagsbóta fyrir okkar viðskiptavini.
Eignastýring Arion banka mun áfram leitast við að skapa og finna fjárfestingarkosti fyrir viðskiptavini til að ávaxta fjármuni þeirra eins og best verður á kosið. Unnið verður sem fyrr að því að skapa ávinning fyrir viðskiptavini með góðri ávöxtun, faglegum vinnubrögðum og markvissri áhættustýringu, ávallt með hagsmuni viðskiptavina að leiðarljósi.
FYRIRTÆKJASVIÐ
Fyrirtækjasvið veitir stærri fyrirtækjum landsins alhliða fjármálaþjónustu og sérsniðnar lausnir sem taka mið af þörfum þeirra hverju sinni. Sviðið býður lausnir á sviði fjármögnunar, innlána, greiðslumiðlunar og virðisaukandi rafrænnar þjónustu. Mörg af stærstu fyrirtækjum landsins eiga farsælt viðskiptasamband við fyrirtækjasvið Arion banka og hafa verið viðskiptavinir bankans um áraraðir. Góð samskipti og þekking á þörfum viðskiptavina er grunnur að farsælu viðskiptasambandi til langs tíma. Framkvæmdastjóri sviðsins er Freyr Þórðarson.
Um fyrirtækjasvið
Starfsemi fyrirtækjasviðs skiptist í þrjú sérhæfð atvinnugreinateymi, verslun og þjónustu, sjávarútveg, og fasteignir og orku. Í hverju teymi starfa viðskiptastjórar sem annast fjármögnun og aðra þjónustu við stærstu viðskiptavini bankans. Sviðið á í góðu samstarfi við önnur svið bankans, svo sem viðskiptabankasvið, bíla- og tækjafjármögnunardeild bankans, markaðsviðskipti og fyrirtækjaráðgjöf, en viðskiptastjórar fyrirtækjasviðs gegna lykilhlutverki við ráðgjöf og milligöngu um lausnir og alhliða bankaþjónustu í þágu viðskiptavina.
Helstu verkefni og viðburðir ársins
Fjárfestingar viðskiptavina bankans jukust í takt við aukinn þrótt í íslensku atvinnulífi sem aftur kallar gjarnan á lánsfjármögnun. Samkeppni var nokkur á árinu, en eftirspurn eftir lánsfjármagni var einnig veruleg og líklega umfram það framboð lánsfjár sem er til staðar í hagkerfinu. Sérstakur skattur á efnahag bankans skekkir samkeppnisstöðu við aðila sem ekki eru skattlagðir með sama hætti, s.s. lífeyrissjóði og erlenda banka sem sækja inn á markaðinn eftir öflugustu íslensku fyrirtækjunum. Fyrirtækjasvið lagði að venju áherslu á góða samvinnu við núverandi viðskiptavini bankans í sínum viðfangsefnum.
Sjávarútvegsteymið þjónustar stærstu útgerðarfyrirtæki landsins en viðskiptavinahópurinn samanstendur af öflugum félögum sem stunda veiðar, fiskvinnslu og sölu á sjávarafurðum.
Sjávarútvegsteymið þjónustar stærstu útgerðarfyrirtæki landsins en viðskiptavinahópurinn samanstendur af öflugum félögum sem stunda veiðar, fiskvinnslu og sölu á sjávarafurðum. Þá hefur deildin tekið varfærin skref í því að fjármagna uppbyggingu á laxeldi á Íslandi. Teymið leiðir einnig útfærslu á stefnu bankans um fjármögnun á alþjóðlegum sjávarútvegsfyrirtækjum, bæði í tengslum við fjárfestingar íslenskra fyrirtækja en einnig beint til erlendra fyrirtækja, með það að markmiði að auka fjölbreytileika þeirra viðskiptavina sem starfa í sjávarútvegi, og þannig dreifa áhættu útlánasafns bankans í greininni. Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa undanfarin ár verið að fjárfesta mikið í greininni, en á árinu tók bankinn þátt í að fjármagna uppbyggingu í fiskvinnslu, kaup og nýsmíði skipa sem og vöxt fyrirtækja vegna kaupa á aflaheimildum. Fyrirtækjasvið hefur verið í samvinnu við erlenda banka um nokkurt skeið um fjármögnun nokkurra verkefna bæði innanlands og erlendis, en slík samvinna hefur verið farsæl og hefur oft leitt til lægri fjármögnunarkostnaðar hjá viðskiptavinum bankans í sjávarútvegi.
Fasteignaverkefni voru áberandi á árinu líkt og fyrri ár. Þar má helst nefna framkvæmdir við stærri fjölbýlishús, stækkun fasteignasafna viðskiptavina bankans og framtíðarverkefni sem lúta að uppbyggingu hótela á höfuðborgarsvæðinu. Fasteigna- og orkuteymið fylgdi nokkrum langtímaverkefnum eftir á árinu, m.a. í innviðauppbyggingu ýmiss konar, orkufrekum iðnaði og orkuframleiðslu. Teymið hefur verið í góðu samstarfi við fjárfestingarbankasvið við útfærslu á sérsniðnum lausnum umfangsmikilla verkefna viðskiptavina bankans og nýtt styrk og vöruframboð bankans þeim til hagsbóta.
Verslunar- og þjónustuteymið sinnir stærri viðskiptavinum í hinum ýmsu geirum, s.s. framleiðslu og iðnaði, ferðaþjónustu, innflutningi, smásölu, upplýsingatækni, fjárfestingum og vátryggingastarfsemi. Á árinu vann teymið að mörgum spennandi verkefnum sem m.a. miðuðu að því að styðja við vöxt viðskiptavina sinna, ásamt því að bjóða nýja viðskiptavini velkomna. Lögð var áframhaldandi áhersla á þjónustu, aðra en útlán, sem endurspeglast í auknum þóknanatekjum sviðsins.
Ábyrgð gagnvart samfélaginu
Í þjónustu sinni lætur bankinn sig ýmis málefni varða sem snerta atvinnulífið og þar með viðskiptavini bankans og starfsfólk leggur sitt af mörkum til upplýstrar umræðu og ákvörðunartöku. Starfsfólk fyrirtækjasviðs var virkur þátttakandi á árinu á ráðstefnum um ferðaþjónustu, fasteignir, sjávarútveg og straumlínustjórnun ásamt því að taka þátt í vinnu bankans í mótun stefnu um samfélagsábyrgð, vera bakhjarl jarðvarmaklasans Iceland Geothermal og standa fyrir málstofu um úthlutun aflaheimilda. Á árinu 2018 mun fyrirtækjasvið skerpa á hlutverki sviðsins þegar kemur að samfélagsábyrgð Arion banka. Meðal annars mun starfsfólk sviðsins áfram taka þátt í að móta og styðja við stefnu bankans á sviði ábyrgra fjárfestinga og lánveitinga.
Starfsemi
Vaxtaberandi eignir sviðsins í árslok námu tæplega 271 milljarði króna, en þar af voru útlán til viðskiptavina um 261 milljarður króna* í árslok 2017 eða sem nemur 31% af heildarútlánum Arion banka til viðskiptavina og 54% af útlánum til fyrirtækja. Nýjar lánveitingar voru umtalsverðar á árinu, einkum í lánum sviðsins í erlendum myntum. Fyrirtækjasvið tók þátt í fjölbreyttum verkefnum viðskiptavina sinna ásamt því að mynda ný tengsl en um 6% af lánabók sviðsins eru lán sem veitt voru til nýrra viðskiptavina bankans.
*Miðað við móðurfélagsreikning.
Árið fram undan
Árið 2017 einkenndist af miklum þrótti í íslensku atvinnulífi. Horfur fyrir 2018 eru nokkuð góðar. Hagvísar eru flestir jákvæðir og nokkur bjartsýni ríkir í atvinnulífinu. Eftirspurn eftir lánsfé er áfram sterk þó að einhver teikn séu á lofti um að toppi hagsveiflunnar hafi verið náð. Á árinu má reikna með áframhaldandi verkefnum á sviði orkuiðnaðar og áframhaldandi þróun í sjávarútvegsfjárfestingu. Fjárfesting í íbúðar- og atvinnuhúsnæði verður áfram talsverð en vanda verður val á verkefnum sem farið er í. Ferðaþjónusta hefur vaxið hratt og má reikna með ýmiss konar ruðningsáhrifum í atvinnulífinu og hugsanlegum vaxtarverkjum. Kjarasamningar eru margir lausir á árinu og mikilvægt að þar takist vel til. Ennfremur verður áhugavert að fylgjast með hvernig erlend fjárfesting muni skila sér í atvinnuuppbyggingu í hagkerfinu. Ljóst er að fjárfesta þarf í innviðum samfélagsins og mikilvægt að taka uppbyggilega umræðu um hvernig einkafjármögnun opinberra verkefna gæti þróast.
Við þessar aðstæður reynir á yfirvegaða ákvörðunartöku í lánsfjárveitingu og skynsamlegt val verkefna, viðskiptavinum og bankanum til hagsbóta. Verkefni sem tekin verður ákvörðun um á árinu munu mörg hver fyrst verða að veruleika eftir nokkur ár þegar efnahagsaðstæður gætu orðið aðrar en í dag. Því skiptir máli að horfa til langs tíma og meta áhrif verkefna á hagkerfið og atvinnulíf. Núverandi viðskiptavinir Arion banka verða í brennipunkti fyrirtækjasviðs, þegar kemur að vali verkefna, en einnig þegar kemur að þjónustuframboði.
Fjárfestingarbankasvið
Meginhlutverk fjárfestingarbankasviðs Arion banka er að leiða saman kaupendur og seljendur á fjármálamarkaði og veita fyrirtækjum og fjárfestum ráðgjöf um uppbyggingu rekstrar og efnahags. Þannig eru helstu þjónustuþættir fjárfestingarbankasviðs miðlun verðbréfa og gjaldeyris, fyrirtækjaráðgjöf og greining. Framkvæmdastjóri sviðsins frá október 2017 er Lýður Þór Þorgeirsson en hann tók við starfinu af Iðu Brá Benediktsdóttur.
Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka veitir ráðgjöf við kaup, sölu, samruna og yfirtöku á fyrirtækjum og stærri eignarhlutum ásamt því að vera leiðandi umsjónaraðili með skráningum verðbréfa á Nasdaq Íslandi. Meðal viðskiptavina fyrirtækjaráðgjafar eru mörg af stærstu fyrirtækjum á Íslandi og flestir helstu fjárfestar landsins. Teymið býr yfir mikilli reynslu og yfirgripsmikilli þekkingu og er áhersla lögð á fagmennsku og vönduð vinnubrögð.
Fyrirtækjaráðgjöf kom að ýmsum verkefnum á árinu 2017. Í byrjun júní var tilkynnt um fyrirhuguð kaup N1 á öllu hlutafé í Festi og var gengið frá kaupsamningi í byrjun október. Fyrirtækjaráðgjöf veitti N1 ráðgjöf við kaupin og er nú unnið að því að uppfylla skilyrði kaupsamnings og stefnt að því að þeirri vinnu ljúki á 2. ársfjórðungi 2018. Fyrirtækjaráðgjöf veitti jafnframt Regin ráðgjöf við kaup á fasteignum í eigu Fast-1. Unnið er að því að ljúka kaupsamningi sem og að uppfylla ýmis skilyrði fyrir kaupunum. Vonir standa til að ljúka viðskiptunum á árinu 2018. Í september 2017 hafði fyrirtækjaráðgjöf umsjón með skráningu Klappa Grænna Lausna á First North markað Nasdaq Ísland. Þar að auki hafði fyrirtækjaráðgjöf umsjón með reglubundnum skuldabréfaútgáfum Reita fasteignafélags og Orkuveitu Reykjavíkur.
Horfur í efnahagslífi hér á landi eru góðar og hyggst fyrirtækjaráðgjöf eftir sem áður vera leiðandi í því að veita fyrirtækjum og fjárfestum faglega ráðgjöf og styðja þannig við áframhaldandi uppbyggingu íslensks atvinnulífs og fjármagnsmarkaða.
Horfur í efnahagslífi hér á landi eru góðar og hyggst fyrirtækjaráðgjöf eftir sem áður vera leiðandi í því að veita fyrirtækjum og fjárfestum faglega ráðgjöf og styðja þannig við áframhaldandi uppbyggingu íslensks atvinnulífs og fjármagnsmarkaða. Undanfarin ár hefur bankinn lagt sitt af mörkum við uppbyggingu verðbréfamarkaðar með því að hafa forgöngu um að skrá átta félög af þeim 13 sem skráð hafa verið á Aðalmarkað Nasdaq á Íslandi. Jafnframt hefur fyrirtækjaráðgjöf veitt ráðgjöf og kynnt markaðnum ýmsar nýjungar á skuldabréfamarkaði. Á árinu 2018 verður haldið áfram á sömu braut og stoðir fjölbreytts atvinnulífs hér á landi styrktar með því að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.
Markaðsviðskipti sinna miðlun fjármálagerninga fyrir innlendra og erlendra viðskiptavina bankans. Með fleiri skráningum á Aðalmarkað Nasdaq á Íslandi hefur verið lagður grunnur að aukinni fjölbreytni og dýpt á hlutabréfamarkaðnum. Arion banki hefur sterka stöðu í veltu verðbréfa á Aðalmarkaði Nasdaq á Íslandi og var til að mynda með mestu hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfamarkaði á árinu 2017. Skuldabréfamiðlun kom að frumsölu skuldabréfa fyrir Garðabæ, Orkuveitu Reykjavíkur og Reiti. Auk þess annast skuldabréfamiðlun frumsölu á sértryggðum skuldabréfum Arion banka. Viðskipti á gjaldeyrismarkaði hafa verið að aukast og lögð er áhersla á að bjóða viðskiptavinum upp á vörur til að verja áhættu.
Megináhersla markaðsviðskipta hefur verið að veita stækkandi hópi viðskiptavina góða þjónustu og aðgang að framúrskarandi þekkingu og kerfum. Áhersla næstu missera mun áfram vera á vöruþróun, til að bjóða viðskiptavinum fleiri tækifæri til ávöxtunar og áhættudreifingar. Á síðasta ári var boðin ný lausn þar sem einstaklingum gefst kostur á að eiga bein viðskipti með innlend hlutabréf í Kauphöll í gegnum Netbanka Arion banka án milligöngu miðlara.
Með afnámi gjaldeyrishafta eru viðskipti með erlend verðbréf að aukast og sérfræðingar markaðsviðskipta veita aðstoð og milligöngu í viðskiptum á skráðum verðbréfum á öllum helstu verðbréfamörkuðum heims.
Markaðsviðskipti Arion banka hafa viðhaldið góðum tengslum vegna miðlunar með erlend verðbréf. Með afnámi gjaldeyrishafta eru viðskipti með erlend verðbréf að aukast og geta sérfræðingar markaðsviðskipta veitt aðstoð og milligöngu í viðskiptum á skráðum verðbréfum á öllum helstu verðbréfamörkuðum heims.
Greiningardeild fjallar um íslenskt efnahagslíf og spáir í framvindu efnahagsmála, þróun hagstærða og afkomu félaga og atvinnugreina.
Greiningardeild gefur út lesefni og kynningar, tekur þátt í fundum og svarar fyrirspurnum. Efni greiningardeildar er ýmist ætlað almenningi, afmörkuðum hópi viðskiptavina eða starfsfólki bankans. Greiningardeild byggir efni sitt ætíð á opinberum upplýsingum. Deildin leggur áherslu á þjónustu við viðskiptavini Arion banka í samstarfi við aðrar deildir bankans.
Eitt af markmiðum greiningardeildar er að efla og bæta opinbera umfjöllun um íslenskt efnahagslíf.
Eitt af markmiðum greiningardeildar er að efla og bæta opinbera umfjöllun um íslenskt efnahagslíf. Greiningardeild er mönnuð sérfræðingum sem hafa menntun, áhuga og reynslu sem nýtist við umfjöllun efnahagsmála. Þeir hafa hæfni og metnað til þess að greina aðalatriði frá aukaatriðum og setja efni sitt fram á auðskiljanlegan hátt. Greiningardeild hefur fullt sjálfstæði frá öðrum deildum bankans.
Sem dæmi um starfsemi deildarinnar á árinu 2017 má nefna að deildin stóð fyrir sex opnum fundum og ráðstefnum í höfuðstöðvum Arion banka þar sem m.a. úttektir á fasteignamarkaði og ferðaþjónustu voru kynntar ásamt hagspá deildarinnar. Þá kynntu sérfræðingar deildarinnar efni sitt á fjölmörgum fundum með viðskiptavinum Arion banka víða um land. Á árinu gaf deildin út 80 Markaðspunkta og 112 greiningar á skráðum félögum.
Framtíðarhorfur
Fjárfestingarbankasvið hefur gegnt viðamiklu hlutverki í uppbyggingu íslensks fjármálamarkaðar síðustu ár. Sviðið hefur verið leiðandi í endurreisn íslensks verðbréfamarkaðar og veitt mörgum af stærstu félögum landsins liðsinni við að endurskipuleggja fjárhagsstöðu sína. Sem hlutfall af landsframleiðslu hefur skuldastaða íslenskra fyrirtækja ekki verið jafnlág lengi. Sama þróun hefur átt sér stað hjá heimilum landsins og skuldastaða ríkissjóðs hefur batnað verulega í kjölfar uppgjöra slitabúa gömlu bankanna, samhliða örum hagvexti.
Áherslu á lækkun skulda hefur fylgt varfærni í fjárfestingum. Þó að merki séu um að fjárfesting, sérstaklega í atvinnulífinu, sé að taka við sér er öllum ljóst að veruleg þörf fyrir nýfjárfestingu hefur byggst upp, ekki síst í innviðum samfélagsins. Á næstu árum má reikna með að fjárfestingar taki við sér. Þar má vænta þess að kostir verðbréfamarkaðar nýtist til fjármögnunar bæði fyrirtækja og opinberra aðila. Nærtækt er að leita þar fyrirmynda frá nágrannalöndum okkar ásamt því að byggja á eigin reynslu.
Það eru góð skilyrði fyrir uppbyggingu verðbréfamarkaða. Nú fer saman hagstæð fjárhagsstaða fyrirtækja og fjárfesta annars vegar og veruleg uppsöfnuð fjárfestingarþörf hins vegar.
Það eru góð skilyrði fyrir uppbyggingu verðbréfamarkaða. Nú fer saman hagstæð fjárhagsstaða fyrirtækja og fjárfesta annars vegar og veruleg uppsöfnuð fjárfestingarþörf hins vegar. Í samanburði við nágrannalöndin er íslenskur hlutabréfamarkaður hlutfallslega smár og markaður með fyrirtækjaskuldabréf agnarsmár þrátt fyrir að umgjörð sé í meginatriðum sambærileg og því gott svigrúm til vaxtar.
Stór skref sem stigin hafa verið í afnámi hafta gefa svo færi á vexti íslenskra fyrirtækja erlendis og gera fyrirtækjum og fjárfestum kleift að dreifa og draga úr áhættu. Að sama skapi opnast augu sífellt fleiri erlendra fjárfesta fyrir þátttöku í íslensku atvinnulífi og í uppbyggingu íslenskra innviða þrátt fyrir þær takmarkanir sem enn eru til staðar.
Það hefur verið stefna Arion banka að leggja sitt af mörkum til uppbyggingar fjármálamarkaða hér á landi. Sterk staða, sem m.a. endurspeglast í sterkri markaðshlutdeild og breiðu þjónustuframboði, hvílir á þeirri stefnu og hæfu og reyndu starfsfólki. Fjárfestingarbankasvið Arion banka byggir á góðum grunni og stefnir að því að viðhalda sinni sterku markaðsstöðu.
Viðskiptabankasvið
Á viðskiptabankasviði Arion banka fá einstaklingar og fyrirtæki vandaða og fjölbreytta fjármálaþjónustu hvar og hvenær sem er. Bankinn starfrækir 24 útibú auk þjónustuvers ásamt því að gera viðskiptavinum sínum kleift að sinna sínum fjármálum í gegnum netbanka, vef, app og aðrar stafrænar lausnir. Framkvæmdastjóri sviðsins er Iða Brá Benediktsdóttir.
Helstu verkefni undanfarið ár hafa snúið að því auka úrval stafrænna lausna bankans með það að markmiði að gera bankaþjónustu þægilegri og hagkvæmari fyrir viðskiptavini hvar og hvenær sem er. Rödd viðskiptavina er gert hátt undir höfði og þeir hafðir með í öllum skrefum þróunar og hönnunar á nýjum vörum og þjónustu.
Unnið hefur verið að aukinni skilvirkni í starfsemi viðskiptabankasviðs með því að draga úr yfirbyggingu og fækka fermetrum í útibúanetinu, ásamt því að auðvelda viðskiptavinum að afgreiða sig sjálfir þegar kemur að þjónustu sem þeir þurftu áður að sækja í útibú eða þjónustuver bankans.
Þægilegri bankaþjónusta
Með tilkomu nýrra stafrænna lausna hefur hegðun viðskiptavina breyst mikið undanfarin ár. Er svo komið að langflestar snertingar við viðskiptavini eru í gegnum stafrænar leiðir eins og app, vef, netbanka og hraðbanka. Arion banki hefur markað sér þá stefnu að bjóða upp á framúrskarandi stafrænar lausnir og veita þannig viðskiptavinum sínum þægilegri bankaþjónustu. Mikill árangur hefur náðst í þeim efnum og má þar nefna sjálfvirkt greiðslumat, nýtt ferli við stofnun viðskipta við bankann, greiðsludreifingu korta í appi og netbanka og sölu og stofnun korta og reikninga á netinu, svo eitthvað sé nefnt. Þá var elsti fríðindaklúbbur landsins, Einkaklúbburinn, settur í app. Jafnframt nýtir bankinn í auknum mæli netspjall og samskiptamiðla í sinni þjónustu.
Stafrænum lausnum bankans hefur verið einstaklega vel tekið af viðskiptavinum og notkun þeirra hefur verið umfram væntingar.
Stafrænum lausnum bankans hefur verið einstaklega vel tekið af viðskiptavinum og notkun þeirra hefur verið umfram væntingar en flest greiðslumöt eru nú framkvæmd á netinu. Meirihluti íbúðalána fer í gegnum rafrænt ferli, greiðsludreifingin fer nær eingöngu í gegnum app og netbanka sem og veiting heimilda, frysting korta og svo mætti lengi telja. Svona árangur næst ekki nema með samstilltu átaki, góðum lausnum og því að svara þörfum viðskiptavina. Arion banka appið var valið besta bankaappið á Íslandi í könnun MMR og er bankinn staðráðinn í að halda þeim sess áfram.
Í stærri útibúum bankans eru starfandi gestgjafar sem tryggja að viðskiptavinir fái góða þjónustu. Þeirra hlutverk er jafnframt að leiðbeina viðskiptavinum þegar kemur að stafrænum þjónustuleiðum bankans. Lögð er áhersla á góða þjálfun starfsfólks með það að markmiði að bæta þjónustu í útibúum bankans enn frekar. Línur hafa verið lagðar varðandi útfærslu og hönnun útibúa sem styðja við áherslu á virðisaukandi þjónustu starfsfólks og hraðþjónustuleiðir í útibúum, s.s. hrað- og netbanka. Einkennisfatnaður verður innleiddur á ný til að tryggja sýnileika starfsfólks í útibúum. Samtímis verður horft til aðgerða til að auka hagkvæmni í rekstri útibúa, t.d. með því að fækka fermetrum og gera hraðþjónustuleiðum hærra undir höfði. Til að draga úr vistspori bankans er allt markaðs- og kynningarefni í útibúum rafrænt.
Útibúinu er ætlað að mæta þörfum viðskiptavina og fylgja eftir hraðri tækniþróun í bankaviðskiptum og breyttri hegðun viðskiptavina.
Þann 21. september síðastliðinn opnaði bankinn framtíðarútibú í Kringlunni, eins konar tilraunaútibú. Útibúinu er ætlað að mæta þörfum viðskiptavina og fylgja eftir hraðri tækniþróun í bankaviðskiptum og breyttri hegðun viðskiptavina. Þarna eru nýjar tæknilausnir prófaðar, eins og t.d. fjarfundabúnaður, og þær sem fá góðar viðtökur hjá viðskiptavinum verða innleiddar í önnur útibú bankans. Fundarherbergi og viðburðasalur er í útibúinu til afnota fyrir viðskiptavini og aðra sem standa fyrir áhugaverðum viðburðum. Til dæmis er hægt að nýta aðstöðuna til funda um fjármál, nýsköpun, efnahagsmál og önnur þau viðfangsefni sem viðskiptavinir hafa áhuga á. Framtíðarútibúið í Kringlunni er ennfremur með lengsta afgreiðslutíma bankaútibúa á Íslandi.
Um mitt ár tók til starfa söluver sem sinnir sölu og ráðgjöf á tryggingum frá Verði, dótturfélagi Arion banka, ásamt sölu og ráðgjöf varðandi lífeyrissparnað. Reyndir ráðgjafar frá Verði voru fengnir til aðstoðar við verkefnið til að tryggja gæði þjónustunnar. Er samstarfið við Vörð liður í því að auka þekkingu starfsmanna Arion banka á þjónustu og vörum Varðar ásamt því að auka enn frekar vöruframboð og þjónustu til viðskiptavina Arion banka.
Breytt umhverfi kallar á breytt skipulag
Hröð þróun í umhverfinu kallar á nýjar áherslur og vinnubrögð. Skipulag sviðsins hefur verið endurskoðað og breytt um áherslur. Á árinu 2017 var stofnað sérstakt teymi sem ber heitið vörur, verðlagning og stafræn framtíð og er markmiðið að fylgja markvissar eftir þeirri miklu velgengni sem stafrænar leiðir bankans hafa notið. Einnig hefur verið lögð áhersla á skilvirka stýringu á vörum viðskiptabankasviðs og eru nú fimm vörustjórar sem hafa fengið aukið umboð til að stýra verðlagningu og vöxtum á þeim vörum sem þeir bara ábyrgð á. Þannig hefur enn frekar verið skerpt á ábyrgð þegar kemur að vörum og þjónustu bankans.
Útibúin á höfuðborgarsvæðinu hafa verið sameinuð í eitt svæði en voru áður tvö. Þessi breyting hefur í för með sér að auðveldara verður að samræma þjónustu og samnýta þekkingu starfsfólks til að mæta kröfum viðskiptavina. Þessi breyting leiðir jafnframt til hagræðingar í yfirstjórn útibúakerfisins en þar er horft til þess að minnka kostnað og auka skilvirkni.
Að auki var sett á stofn ný deild í fyrirtækjaþjónustu viðskiptabankasviðs, fyrirtæki, sem ætlað er að leggja grunninn að sókn bankans á þann markað.
Sókn á fyrirtækjamarkað
Arion banki hefur á undanförnum árum stóraukið þjónustu sína við lítil og meðalstór fyrirtæki. Umboð og ákvarðanavald hefur markvisst verið aukið í framlínu.
Einingin fyrirtæki innan viðskiptabankasviðs ber ábyrgð á útlánum, sölu og gæðastýringu til smærri og meðalstórra fyrirtækja. Innan einingarinnar eru þrjár deildir, fyrirtækjaviðskipti, fyrirtækjalausnir og bíla- og tækjafjármögnun. Rík áhersla er á sérhæfingu innan hverrar deildar, t.d. í atvinnugreinaþekkingu, rafrænum fyrirtækjalausnum og fjármögnun tækja.
Bíla- og tækjafjármögnun var stofnuð fyrir 5 árum og þjónustar bæði einstaklinga og fyrirtæki. Innan einingarinnar starfar fólk með mikla reynslu og sérþekkingu í fjármögnun bíla og atvinnutækja. Frá stofnun hefur einingin gengið mjög vel og hafa útlán til viðskiptavina aukist um 44% frá árinu 2015 og stendur útlánasafnið í árslok 2017 í 17,5 milljörðum króna.
Í takt við vegferð bankans til stafrænnar framtíðar var kynnt á árinu ný lausn fyrir fyrirtæki til að stofna til viðskipta við bankann.
Í takt við vegferð bankans til stafrænnar framtíðar var kynnt á árinu ný lausn fyrir fyrirtæki til að stofna til viðskipta við bankann. Ferlið er nú að fullu rafrænt og tekur aðeins örfáar mínútur fyrir hluta- og einkahlutafélög að koma í viðskipti við Arion banka. Þessari lausn, eins og öðrum stafrænum lausnum bankans, hefur verið afar vel tekið og á liðnu ári komu rúmlega 300 ný fyrirtæki í viðskipti í gegnum þessar nýju dyr að fyrirtækjaþjónustu bankans.
Útlán til lítilla og meðalstórra fyrirtækja hafa aukist um 108% frá árinu 2013 og jukust um 9% á árinu 2017. Lánasafnið er áfram vel dreift en stærstu atvinnugreinarnar eru fasteignarekstur og byggingastarfsemi, sjávarútvegur og verslun og þjónusta en bankinn er jafnframt með góða markaðshlutdeild í landbúnaði.
Framtíðin er stafræn
Ljóst er að miklar breytingar eru fram undan í bankaþjónustu og Arion banki hefur markað sér þá stefnu að vera í fararbroddi í þeim efnum. Fjölmargar stafrænar nýjungar hafa tryggt Arion banka forskot þegar kemur að þægilegri bankaþjónustu sem auðveldar viðskiptavinum lífið. Móttökurnar sýna ótvírætt að viðskiptavinir bankans kunna vel að meta þessa auknu þjónustu og þægindi sem bankinn býður. Þessari vegferð verður haldið áfram á árinu 2018 með það að leiðarljósi að auka enn á það forskot sem bankinn hefur náð á þessu sviði.