Viðskiptavinir okkar hafa ólík markmið og takast á við fjölbreytt verkefni og áskoranir. Við viljum auðvelda þeim daglegt líf, að grípa þau tækifæri sem gefast, að láta drauma sína rætast og ná markmiðum. Við vinnum með viðskiptavinum að því að búa í haginn fyrir framtíðina. Saman látum við góða hluti gerast.
Arion banki býður alhliða bankaþjónustu og sérsniðnar lausnir
- Arion banki er fjárhagslega sterkur banki sem veitir alhliða bankaþjónustu til fyrirtækja og einstaklinga.
- Áhersla á fyrirtæki og einstaklinga sem þurfa fjölbreytta fjármálaþjónustu.
- Áhersla á viðskiptasamband til langs tíma með því að bjóða framúrskarandi þjónustu og sérsniðnar lausnir.
- Starfar á höfuðborgarsvæðinu og í stærstu byggðakjörnum.
- Leggur sitt af mörkum til uppbyggingar atvinnulífs og samfélags.
- Ætlar að ná afgerandi stöðu til lengri tíma á íslenskum bankamarkaði hvað varðar arðsemi, skilvirkni og þjónustuframboð.
- Utan Íslands á bankinn einkum viðskipti við fyrirtæki sem tengjast sjávarútvegi í Evrópu og Norður-Ameríku.
Helstu áherslur og eiginleikar
Hornsteinarnir
Hornsteinarnir lýsa okkar karakter og hvernig við störfum:
Gerum gagn
Við leggjum grunn að góðum árangri viðskiptavina okkar og gerum þeim gagn með góðri þjónustu, fjölbreyttum lausnum og öflugri vöruþróun. Við gerum samfélaginu gagn með því að starfrækja góðan banka og leggjum okkar af mörkum til að hér á landi starfi traust og öflugt fjármálakerfi.
Komum hreint fram
Við komum hreint fram, af virðingu og gætum trúnaðar í hvívetna. Vinnum af heilindum, erum sanngjörn og segjum hlutina eins og þeir eru. Við berum virðingu fyrir samfélaginu og ástundum góða viðskiptahætti. Þannig ávinnum við okkur traust viðskiptavina og samfélagsins.
Látum verkin tala
Það skiptir mestu hverju við komum í verk. Við forðumst ekki erfið verkefni heldur tökumst á við þau og vinnum af fagmennsku. Komum hlutum í framkvæmd og öxlum ábyrgð á okkar verkefnum og ákvörðunum. Sýnum frumkvæði í samskiptum, sýnum skjót viðbrögð og upplýsum um framgang mála. Við ætlum að vera áfram í fararbroddi hvað varðar árangursríka fjármálaþjónustu og stuðla að uppbyggingu og árangri fyrir viðskiptavini og samfélagið allt.
Við tengjum betur
Við erum tengslabanki og mætum fjölbreyttum þörfum viðskiptavina með öflugri sérþekkingu, framúrskarandi þjónustu og fjölbreyttu vöruframboði á sviði fjármála. Með því að setja okkur í spor viðskiptavina okkar, skilja aðstæður þeirra og bjóða lausnir sem henta hverjum og einum uppfyllum við þarfir þeirra. Við kappkostum að viðhalda góðu viðskiptasambandi til lengri tíma, skila árangri og fara fram úr væntingum.
Betri bankaþjónusta
Straumlínustjórnun er hluti af menningu okkar. Við leggjum áherslu á skilvirka starfsemi þar sem hlustað er á rödd viðskiptavinarins og hann settur í aðalhlutverk. Við vinnum markvisst gegn sóun og styttum boðleiðir til að auka sveigjanleika og snerpu.
Við lítum á vandamál sem tækifæri til að gera betur, leggjum áherslu á að finna rót vandans og leita lausna. Þannig lærum við á hverjum degi og gerum betur í dag en í gær. Ávinningurinn nýtist til að veita sífellt betri þjónustu sem skilar sér í betri upplifun og aukinni ánægju viðskiptavina.
Þannig veitum við viðskiptavinum okkar betri bankaþjónustu og gerum gagn.
Stafræn framtíð
Við ætlum okkur að vera fremsti stafræni bankinn á Íslandi.
Stafræn tækni býður upp á skilvirkni, sveigjanleika og þar með aukna þjónustu við viðskiptavini. Umhverfið gerir þá kröfu til okkar að við séum fljót að koma til móts við þróun sem er í stafrænni tækni. Við temjum okkur hröð en öguð vinnubrögð, nána samvinnu á milli sviða og skapandi hugsunarhátt. Við bregðumst þannig við breyttri samkeppni og breyttum væntingum markaðarins.
Í hröðu samfélagi nútímans vill viðskiptavinurinn ráða ferðinni. Hann vill ákveða sjálfur hvar, hvenær og hvernig hann nýtir sér þjónustuna og við þurfum að tryggja að við mætum honum þar sem hann þarf á okkur að halda. Við endurvinnum ferlana okkar út frá þessari upplifun, erum tilbúin að setja hið viðtekna til hliðar og hugsa upp á nýtt hvernig stafræn tækni getur fjarlægt hindranir og einfaldað viðskiptavinum okkar lífið.
Þannig bjóðum við þægilegri bankaþjónustu.