Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor´s (S&P) hækkaði lánshæfismat bankans úr BBB í BBB+ með stöðugum horfum í október. Á árinu steig Arion banki mikilvægt skref þegar eftirstöðvar skuldabréfs sem gefið var út til Kaupþings árið 2016 var greitt upp að fullu.
Fjármögnun
Á undanförnum misserum hefur bankinn stigið afgerandi skref til að auka fjölbreytni fjármögnunarkosta, meðal annars með útgáfu skuldabréfa í evrum og öðrum gjaldmiðlum. Á innlendum markaði hefur bankinn haldið áfram að gefa út sértryggð skuldabréf og víxla.
EMTN útgáfur
Bankinn lauk við tvær skuldabréfaútgáfur í evrum á árinu, í janúar og júní.
Í janúar gaf Arion banki út skuldabréf að upphæð 200 milljónir evra eða sem nemur um 25 milljörðum íslenskra króna til fimm ára sem ber fast 1,55% álag á millibankavexti. Um var að ræða stækkun á 300 milljón evra skuldabréfi sem gefið var út í desember 2016 og fór heildarútgáfa bréfsins því í 500 milljónir evra, eða 63 milljarða króna.
Í júní gaf Arion banki út nýtt 300 milljón evra skuldabréf til þriggja ára eða sem samsvarar 38 milljörðum króna. Bréfin voru seld með 0,88% álagi á millibankavexti og var rúmlega tvöföld umframeftirspurn eftir bréfunum. Samhliða útgáfunni var ráðist í endurkaup á 300 milljóna evra skuldabréfi með gjalddaga 2018 og voru 100 milljónir evra keyptar til baka.
Bankinn gaf út minni skuldabréfaútgáfur í NOK og SEK undir EMTN prógrammi bankans fyrir rúma 19 milljarða króna.
Á árinu lauk Arion banki að greiða upp eftirstöðvar skuldabréfs sem gefið var út til Kaupþings sem hluti af aðgerðaráætlun íslenskra stjórnvalda til losunar fjármagnshafta. Höfuðstóll skuldabréfsins við útgáfu var rúmar $747 milljónir eða um 97 milljarðar íslenskra króna á gengi þess tíma. Með uppgreiðslu bréfsins er bankinn að fullu fjármagnaður með lánsfé af markaði.
Hækkun á lánshæfismati
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor´s (S&P) hækkaði lánshæfismat Arion banka úr BBB í BBB+ með stöðugum horfum. Bætt lánshæfismat endurspeglar góða stöðu íslensks efnahagslífs, bætta skuldastöðu heimila og fyrirtækja og jákvæð áhrif af losun fjármagnshafta. Einnig horfði S&P til greiðari aðgangs Arion banka að erlendum lánsfjármörkuðum og sterkrar eiginfjárstöðu bankans.
Lánshæfismat Arion banka og íslenska ríkisins gefið út af S&P
Flokkur | Arion banki | Íslenska ríkið* |
---|---|---|
Langtíma (Long-term) | BBB+ | A |
Skammtíma (Short-term) | A-2 | A-1 |
Horfur (Outlook) | Stöðugar | Stöðugar |
Útgáfudagur (Last rating action) | 25. október 2017 | 17. mars 2017 |
Skýrsla S&P | 15. desember 2017 |
* Lánshæfi í erlendri mynt. Nánari upplýsingar á www.sedlabanki.is.
Útgáfa sértryggðra skuldabréfa og víxla
Arion banki hélt áfram útgáfu sinni á sértryggðum skuldabréfum sem tryggð eru samkvæmt lögum nr. 11/2008 um sértryggð skuldabréf. Á árinu voru gefin út sértryggð skuldabréf fyrir 29.920 milljónir króna. Óverðtryggðu skuldabréfaflokkarnir ARION CB 1 og ARION CB 4 voru greiddir upp að fullu á árinu og námu uppgeiðslur þessara flokka tæpum 23 milljörðum.
Arion banki endurnýjaði samninga við Kviku, Íslandsbanka og Landsbankann um viðskiptavakt á sértryggðum skuldabréfum á Nasdaq Íslandi útgefnum af Arion banka. Tilgangur samninganna er að efla viðskipti með markflokka sértryggðra skuldbréfa útgefnum af bankanum.
Bankinn hefur haldið áfram útgáfu víxla á innlendum markaði, en útgáfa víxla hefur aukið enn frekar fjölbreytni í fjármögnun bankans. Alls voru gefnir út víxlar að fjárhæð 20,4 milljarðar króna á árinu 2017. Útistandandi víxlar við árslok voru samtals 10,9 milljarðar króna.
Lausafjárstaða og lausafjáráhætta
Bankinn er fjármagnaður að hluta með innlánum frá einstaklingum, fyrirtækjum og lífeyrissjóðum. Eitt af meginmarkmiðum Arion banka er að viðhalda sterku lausafjárþekjuhlutfalli (e. liquidity coverage ratio, LCR) sem er reiknað samkvæmt reglum Seðlabankans. LCR tekur mið af evrópskum lausafjárreglum sem byggja á Basel III staðlinum og tekur á áhættuþáttum sem snerta hvikleika innlána og tímamisvægi eigna og skulda. Í árslok var lausafjárþekjuhlutfall bankans 221% og fyrir erlenda gjaldmiðla var hlutfallið 323%, sem er vel yfir þeim mörkum sem reglur Seðlabankans kveða á um.
Fjármögnunarhlutfall bankans (e. Net Stable Funding Ratio, NSFR) var 125% í árslok 2017 og 181% í erlendum gjaldmiðlum. Hlutfallið vegur tiltæka stöðuga fjármögnun bankans gagnvart nauðsynlegri stöðugri fjármögnun samkvæmt aðferð sem tekur m.a. tillit til seljanleika eigna og gjalddaga skulda. Hlutföllin sýna að fjármögnun bankans er stöðug.