Margs konar áhætta er samofin daglegri starfsemi Arion banka sem fjármálafyrirtækis. Mikilvægur þáttur í starfsemi bankans og ábyrgð hans gagnvart samfélaginu, er að stýra áhættu og taka upplýstar ákvarðanir. Áhættustýring er því grundvallarþáttur í starfi bankans og samfélagsábyrgð hans. Stefna bankans er að hafa virka áhættustýringu sem felur í sér að greina og mæla verulega áhættu og grípa til aðgerða ef hún fer út fyrir skilgreind mörk.
Stjórn bankans ber endanlega ábyrgð á áhættustýringarkerfi hans og ber að tryggja að viðunandi áhættustefnur og stjórnarhættir séu ákvarðaðir til þess að fylgjast með áhættuþáttum. Með sama hætti er áhættustýring dótturfélaga í höndum viðkomandi dótturfélaga. Fyrir móðurfélagið (bankann) ákvarðar bankastjórnin áhættuvilja. Áhættuviljinn er settur fram sem takmörk á áhættuþáttum og mörkum sem áhættustýringarsvið bankans fylgist með.
Bankastjóri ber ábyrgð á að viðhalda skilvirku áhættustýringarkerfi, ferli og eftirliti, svo og að viðhalda vitund starfsfólks um áhættu þannig að áhætta sé viðfangsefni allra starfsmanna.
Áhættustýringarsvið bankans starfar undir stjórn framkvæmdastjóra áhættustýringar. Sviðið er sjálfstæð stjórnunareining og ber beina ábyrgð gagnvart bankastjóra. Nánari upplýsingar um áhættustýringarsvið.
Í bankanum starfa nokkrar nefndir sem stýra áhættu. Áhættunefnd stjórnar bankans (BRIC) ber ábyrgð á eftirliti með áhættustýringarkerfi bankans, áhættuvilja og innramatsferli á eiginfjár- og lausafjárþörf. Eigna- og fjárhagsskuldbindinganefnd (ALCO), undir formennsku bankastjóra eða staðgengils hans, ber ábyrgð á umsjón með misvægi eigna og skulda; lausafjáráhættu, markaðsáhættu, vaxtaáhættu og eiginfjárstýringu. Fjárfestingaráð (UIC) tekur ákvarðanir um sölutryggingu og fjárfestingu. Hlutverk gagnanefndar (DC) er að tryggja að gögnum sé stýrt á viðeigandi hátt. Öryggisnefnd (SC) ber ábyrgð á öryggismálum bankans, bæði upplýsingaöryggi og raunlægu öryggi.
Í bankanum starfa fjórar lánanefndir: Lánanefnd stjórnar (BCC), sem tekur ákvarðanir um alla meiriháttar útlánaáhættu, lánanefnd Arion banka (ACC), sem starfar innan heimilda sem skilgreindar eru sem hlutfall af eiginfjárgrunni bankans, og svo fyrirtækjalánanefnd (CCC) og útibúanefndir (RBC), sem hafa þrengri lánaheimildir. Starfræktar eru fimm verðmatsnefndir sem ætlað er að setja viðmið fyrir bankann við mat á tryggingum og yfirfara verðmat á verðbréfum í eigu bankans.
Helstu áhættuþættir bankans eru útlánaáhætta þ.m.t. samþjöppunaráhætta, lausafjáráhætta, verðtryggingaráhætta og vaxtaáhætta. Í áhættuskýrslu bankans árið 2017 er fjallað ítarlega um áhættuþættina og stýringu þeirra.Eiginfjárþörf
Eigin fé bankans er ætlað að mæta áhættunni af óvæntu tapi sem getur orðið í starfsemi hans. Stærð eiginfjárgrunns bankans á að endurspegla áhættuna á hverjum tíma að teknu tilliti til mögulegrar óhagstæðrar framtíðarþróunar. Áhættan á efnahagsreikningi bankans er metin með útreikningi á svokölluðum áhættugrunni, þar sem eignir bankans eru áhættuvegnar. Bankinn notast við staðalaðferð sem er almennt ætlað að vera varfærnari en aðferðir sem byggja á innra mati. Eiginfjárútreikningar eru samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og reglugerð nr. 233/2017 um varfærniskröfur vegna starfsemi fjármálafyrirtækja en með þeim er tilskipun og reglugerð Evrópusambandsins um eiginfjárkröfur (CRD IV og CRR) teknar upp á Íslandi, en þær byggja á Basel III staðlinum. Ákvæði um lægri eiginfjárkröfu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki var þó ekki tekin upp hér á landi.
Eiginfjárgrunnur bankans var 184,0 milljarðar króna í árslok 2017 og þar af nam almennt eigið fé þáttar 1 (CET1) 180,6 milljörðum króna Eiginfjárgrunnurinn er lækkaður vegna fyrirhugaðrar útgreiðslu arðs og kaupa á eigin hlutabréfum, sem heimiluð voru á hluthafafundi bankans þann 12. febrúar 2018. Áhættugrunnur bankans var 766,8 milljarðar króna í árslok 2017 og hækkaði um 21,1 milljarða á árinu. Eiginfjárútreikningar bankans byggja á stöðu samstæðu samkvæmt varfærniskröfum og taka ekki tillit til dótturfélaga í tryggingastarfsemi, en um þau gilda sérstakar gjaldþolskröfur. Meðaláhættuvog (áhættugrunnur sem hlutfall af heildareignum) bankans hefur lækkað úr 72% í 68% á árinu sem m.a. skýrist af sölu hlutabréfaeigna, lækkandi vanskilatíðni og endurmats á virði trygginga.
Eiginfjárhlutfall bankans í lok árs 2017 var 24,0% að teknu tilliti til fyrirhugaðrar lækkunar á eigið fé bankans.
Til viðbótar við eiginfjárkröfu samkvæmt reglum um varfærniskröfur, sem nefnist Stoð 1 (e. Pillar 1), þá metur bankinn viðbótareiginfjárþörf samkvæmt innramatsferli (e. Internal Capital Adequacy Assessment Process, ICAAP). Innramatsferlinu er ætlað að tryggja að bankinn búi yfir fullnægjandi áhættustýringarferlum og -kerfum til þess að greina, stýra og mæla heildaráhættu bankans. Matsferlið miðar að því að greina og mæla áhættu samstæðunnar út frá helstu áhættuþáttum, að meðtöldum þeim sem ekki er gert ráð fyrir í Stoð 1, og tryggja að samstæðan ráði yfir eigin fé til að mæta öllum áhættum í rekstrinum. Fjármálaeftirlitið (FME) hefur eftirlit með samstæðunni, tekur við upplýsingum um innra mat samstæðunnar á eiginfjárþörf og ákvarðar viðbótareiginfjárkröfu fyrir stöðu samstæðuna í kjölfar könnunar- og matsferlis (e. Supervisory Review and Evaluation Process, SREP). Sú eiginfjárþörf sem myndast vegna mats FME, til viðbótar við lögbundna 8% lágmarkseiginfjárkröfu undir Stoð 1, nefnist viðbótareiginfjárkrafa undir Stoð 2 (e. Pillar 2). Niðurstaða viðbótarkröfu fyrir Stoð 2 vegna stöðu bankans í lok árs 2016 var 3,4% af áhættugrunni og miðar það við stöðu samstæðu án dótturfélaga í tryggingarstarfsemi.
Samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, skal bankinn uppfylla samanlagða kröfu um eiginfjárauka en henni er ætlað að tryggja að bankinn viðhaldi lágmarks eigin fé þrátt fyrir alvarleg áföll. FME hefur tekið ákvörðun um eiginfjárauka í samræmi við tillögur Fjármálastöðugleikaráðs og hefur skilgreint Arion banka sem kerfislega mikilvæga fjármálastofnun á Íslandi. Samanlögð krafa vegna eiginfjárauka var 8,75% í lok árs 2017. Virkar eiginfjárkröfur vegna kerfisáhættuauka og sveiflujöfnunarauka eru ákvarðaðar út frá vegnu meðaltali samsvarandi eiginfjárauka í þeim löndum sem skuldbindingar bankans ná til og vogin ákvarðast af hlutfalli útlánaáhættu í áhættugrunni. Aðrir eiginfjáraukar eru verndunarauki og eiginfjárauki vegna kerfislegs mikilvægis. Samanlagður virkur eiginfjárauki fyrir bankann var 8,4% í lok árs 2017.
Eiginfjárgrunnur samstæðunnar uppfyllir heildareiginfjárkröfu vegna Stoðar 1, Stoðar 2 og eiginfjárauka. Heildarkrafan er 19,8% af áhættugrunni og eiginfjárgrunnur telur alls 24,0% af áhættugrunni. Bankinn setur að auki innri varúðarauka sem er 1,5% af áhættugrunni. FME getur einnig sett eiginfjárviðmið (Stoð 2G) umfram stoð 1, stoð 2 og eiginfjárauka á grundvelli niðurstöðu álagsprófa.
Útlánaáhætta
Útlánaáhætta er hættan á að mótaðili efni ekki svakuldbindingar sínar á fyrirfram ákveðnum tíma með afleiðingum fyrir tekjur og efnahag bankans. Lán til viðskiptavina og fjármálastofnana eru langstærsta uppspretta útlánaáhættu
Sterkt safn íbúðalána með lækkandi vanskilum og batnandi veðhlutföllum
Íbúðalán eru kjarnaafurð í vöruframboði Arion banka. Íbúðalánasafn bankans jafngildir 39% af heildarlánum í árslok og hefur þetta hlutfall aukist úr 12% frá því í árslok 2010. Lykillinn að þessum mikla vexti var yfirtaka bankans árið 2011 á íbúðalánasafni sem áður tilheyrði Kaupþingi og kaupum á lánasöfnum einstaklinga, en samhliða því hafa nýjar lánveitingar Arion banka til íbúðakaupa gengið vel. Bankinn hefur verið í fararbroddi á íbúðalánamarkaði, þar sem hann hefur m.a. boðið upp á óverðtryggð íbúðalán sem og stafrænar lausnir við í íbúðarfjármögnun. Í árslok 2017 voru óverðtryggð lán 29% af íbúðalánum bankans en önnur íbúðalán eru verðtryggð.Gæði íbúðarlánasafns bankans hafa aukist jafnt og þétt með bættri veðstöðu og lækkun vanskila. Helstu ástæður lækkunar vanskila undafarin misseri eru bætt efnahagsumhverfi og framgangur í innheimtuferli lána.
Út frá verðmæti íbúðalána í árslok 2017 voru 83% íbúðalána með veðhlutfall lægra en 80%. Til samanburðar voru 76% lána svo vel tryggð í árslok 2016. Mikill meirihluti íbúðalána er til fjármögnunar fasteignakaupa á Höfuðborgarsvæðinu, eða 71% að verðmæti.
Áhættudreift lánasafn
Lán til viðskiptavina eru vel dreifð. Lán til einstaklinga eru 48% af heildarlánum til viðskiptavina og þar af eru 85% til íbúðakaupa. Fyrirtækjalán eru fyrst og fremst til þriggja atvinnugreina: Fasteignaviðskipta og byggingastarfsemi, fiskveiða og –vinnslu og heildsölu og smásölu, sem eru 32%, 20% og 14% af fyrirtækjalánum, í þessari röð. En þó áhættudreifing til einstaklinga og atvinnugreina sé góð, þá er enn nokkur samþjöppun á einstök nöfn viðskiptavina.
Útlánasamþjöppun á einstök nöfn
Tryggingarþekja lána til viðskiptavina
Til tryggingar á lánum eru fasteignir einstaklinga og viðskiptahúsnæði algengust eða 79% af heildartryggingum. Einnig eru til tryggingar fiskiskip auk annarra áþreifanlegra verðmæta s.s. verðbréfa og reiðufjár. Bankinn leggur mikla áherslu á utanumhald trygginga, þ.m.t. verðmat og miðlæga skráningu. Í árslok 2017 var heildarvirði lána til viðskiptavina 765.101 milljónir króna tryggt með tryggingum að heildarverðmæti 650.748 milljónum króna og er heildarveðþekja því 85%, en eins og fram kemur á neðangreindri mynd er veðþekja ólík milli atvinnugreina.Gæði lánabókar aukast stöðugt
Bankinn skilgreinir vandræðalán sem þau lán sem eru í vanskilum í yfir 90 daga og lán sem hafa verið varúðarniðurfærð, óháð fjölda vanskiladaga. Hlutfall vandræðalána hefur lækkað stöðugt frá því að það var hæst árið 2010. Það hefur fyrst og fremst tekist með endurskipulagningu lána og úrlausn ólöglegra gengistryggðra lána. U.þ.b. 65% vandræðalána er í 90 daga vanskilum en án varúðarniðurfærslu, sökum þess hversu vel þau eru tryggð.Rekstraráhætta
Arion banki skilgreinir rekstraráhættu sem áhættu á beinu eða óbeinu tapi vegna ófullnægjandi innri verkferla, mannlegra mistaka, kerfismistaka eða vegna ytri atburða í rekstrarumhverfi, sem áhrif hafa á rekstur bankans. Bankinn skilgreinir upplýsingatækniáhættu, lagalega áhættu og orðsporsáhættu sem hluta af rekstraráhættu.
Ábyrgð á stjórnun eigin rekstraráhættu liggur hjá sviðum bankans. Rekstraráhættudeild ásamt sviðunum stýrir þróun og viðheldur aðferðum til að greina, mæla, hafa eftirlit með og stjórna rekstraráhættu.
Helstu aðferðir bankans til að greina og mæla rekstraráhættu eru:
- Kortlagning á helstu ferlum bankans (e. BPM)
- Áhættusjálfsmat (e. Risk and Control Self-Assessment)
- Innleiðing stýringa (e. Internal controls)
- Greining frávika (e. Loss Data)
- Breytingastjórnun (e. Change management)
Starfsmönnum bankans ber að láta vita um frávik sem verða í starfseminni. Með frávikum er átt við það sem fer úrskeiðis í starfseminni og tengist þjónustu við viðskiptavini, þeim vörum sem við bjóðum, hvernig við vinnum verkefnin eða viðskiptaháttum okkar. Frávik geta valdið bankanum beinu fjárhagstjóni (tapsatburðir / e. loss data) en geta líka valdið óbeinu tjóni eða skaðað orðspor bankans. Upplýsingar um frávik eru notaðar til að meta viðbótareiginfjárþörf bankans vegna rekstraráhættu og sem grunnur að endurbótum á starfsemi bankans.
*Frá og með 2016 meðhöndlar bankinn skráða tapsatburði með þeim hætti að tjón af þeirra völdum er áætlað þar til endanleg niðurstaða liggur fyrir, í stað þess að bíða endanlegrar niðurstöðu. Meðal þeirra atburða sem þannig eru meðhöndlaðir eru þrjú tilvik um meint innra misferli sem rannsökuð voru á árinu 2016. Eitt tilvikið er talið hafa átt sér stað hjá fyrirtæki sem sameinað var bankanum árið 2015.
Innan bankans er reglulega framkvæmt áhættusjálfsmat til að greina, meta og mæla áhættur. Niðurstöður eru notaðar til frekari úrbótavinnu til samræmis við áhættuviðmið bankans. Rekstraráhætta bankans fylgir eftir aðgerðaráætlunum.
Fylgst er reglulega með áhættuvísum, en það eru lykilstærðir sem geta gefið vísbendingu um að áhætta sé að aukast og fara umfram áhættuvilja. Skýrslugjöf til yfirstjórnar byggir m.a. á skráðum tapsatburðum, niðurstöðum úr áhættusjálfsmati og áhættuvísum.
Stjórnun upplýsingaöryggis fellur undir öryggisstjóra. Samskiptagáttum til viðskiptavina fer fjölgandi og hröð þróun tengd tækniumhverfinu veldur því að aukin áhætta er tengd upplýsingaöryggi. Bankinn heldur því áfram að leggja aukna áherslu á stjórnun upplýsingaöryggis. Upplýsingaöryggi felur í sér leið til að tryggja leynd, réttleika og tiltækileika.
Við útreikning á eiginfjárkröfu vegna rekstraráhættu beitir bankinn staðalaðferð (e. Standardised Approach). Eiginfjárbinding vegna rekstraráhættu fyrir árið 2017 var 6.881 m.króna.
Markaðsáhætta
Markaðsáhætta er hættan á að verð- og vaxtabreytingar á fjármálamörkuðum hafi áhrif á virði og sjóðstreymi fjármálagerninga bankans með neikvæðum áhrifum á hagnað og eigið fé bankans. Helstu áhættuþættir eru vaxta-, hlutafjár- og gjaldeyrisáhætta.
Vaxtaáhætta stafar að mestu leyti af því að fyrir hluta efnahagsreiknings bankans er misræmi milli gjalddaga vaxtaberandi eigna og skulda og gildistími vaxta er mismunandi. Stærstur hluti áhættunnar stafar af safni verðtryggðra íbúðalána á föstum vöxtum sem voru upphaflega gefin út á árunum 2004 til 2006. Áhættan er þó varin að miklu leyti þar sem safnið er að hluta fjármagnað með samningsbundnum sértryggðum skuldabréfum á föstum vöxtum. Bankinn hefur dregið úr þessari áhættu með útgáfu nýrra sértryggðra skuldabréfa og með því að bjóða viðskiptavinum sínum upp á lán með breytilegum vöxtum.
Á undanförnum misserum hafa orðið breytingar á vaxtakjörum á Íslandi og bæði nafnvextir og raunvextir hafa lækkað. Vegna hagstæðra endurfjármögnunarkjara hafa uppgreiðslur og endurfjármögnun viðskiptavina bankans verið umtalsverðar. Uppgreiðsluáhætta bankans er milduð með uppgreiðslugjöldum og eigin uppgreiðsluheimildum fyrir hluta af lántökum bankans. Uppgreiðslur bankans á samningsbundnum sértryggðum skuldabréfum undanfarin misseri eru viðbrögð við uppgreiðslum íbúðalána. Bankinn stendur frammi fyrir þeirri áhættu að vaxtagjöld af skuldum bankans á föstum vöxtum standi í stað á meðan vaxtatekjur útlána dragast saman vegna lækkandi grunnvaxtastigs. Útreikningar bankans fyrir vaxtanæmni taka tillit til uppgreiðsluáhættu.
Bankanum hefur tekist að draga umtalsvert úr hlutafjáráhættu með skipulagðri söluáætlun síðustu ár. Í byrjun árs 2016 var hlutur samstæðunnar í Bakkavör Group Ltd. seldur og við það varð staða bankans í hlutdeildarfélögum utan kjarnastarfsemi óveruleg. Staða bankans í öðrum skráðum bréfum hefur minnkað töluvert á seinustu árum í kjölfar sölu eigna á markaði.
Hlutabréfastaða á veltubók eigin viðskipta og vegna afleiðuviðskipta dróst saman á síðasta ári. Áhættustýring fylgist náið með áhættunni og hefur eftirlit með því að stöður séu innan heimilda og tryggingar séu til staðar.
Gjaldeyrisáhætta bankans felst í hættunni á að sveiflur í gengi íslensku krónunnar hafi óhagstæð áhrif á afkomu bankans. Gjaldeyrisójöfnuður samstæðunnar í lok árs 2017 var 0,2 milljarðar króna og hefur hann dregist saman jafnt og þétt á undanförnum árum. Bankinn notar afleiðusamninga að nokkru leyti til að verja sig gegn gjaldeyrisáhættu.
Hrein staða verðtryggðra eigna og skulda bankans var 133,0 milljarðar króna í lok árs 2017 og er það aukning um 27 milljarða króna frá árinu á undan. Aukningin skýrist af vexti verðtryggðra útlána umfram vöxt verðtryggðra skuldbindinga.
Lausafjáráhætta
Lausafjáráhætta er sú áhætta að samstæðan, þrátt fyrir að vera gjaldfær, lendi í erfiðleikum með að mæta skuldbindingum sínum þegar þær gjaldfalla eða geti aðeins tryggt endurgreiðslu með óhóflegum kostnaði.
Samhliða innramatsferli fyrir eiginfjárþörf metur bankinn lausafjárþörf samkvæmt innramatsferli (e. Internal Liquidity Adequacy Assessment Process, ILAAP). Ferlinu er ætlað að tryggja að bankinn búi yfir nægu lausu fé og að viðeigandi áætlanir, stefnur, aðferðir og kerfi séu til staðar til að greina, stýra og fylgjast með lausafjáráhættu.
Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands fara með eftirlit með því að bankinn uppfylli kröfur og skyldur vegna lausafjáráhættu.
Nánar er fjallað um lausafjárstöðu og lausafjáráhættu hér.