Hjá Arion banka er lögð áhersla á að skapa starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, metnaði, framsækni og umfram allt góðri samvinnu á milli sviða, starfsstöðva og einstaklinga. Stefna Arion banka er að hámarka mannauð sinn með því að tryggja jöfn tækifæri og kjör starfsfólks af báðum kynjum og vera eftirsóknarverður vinnustaður fyrir konur jafnt sem karla. Bankinn hefur hlotið jafnlaunavottun VR og starfar samkvæmt henni.
Ávallt er leitast við að gera betur í dag en í gær og er rík áhersla lögð á stöðugar umbætur og frumkvæði starfsfólks í að bæta starfsemina. Hjarta starfseminnar er mannauður Arion banka og kappkostar bankinn að hlúa vel að starfsfólki sínu.
Fjölbreyttur hópur starfsfólks
Hjá Arion banka starfar fjölbreyttur hópur fólks sem hefur víðtæka reynslu og þekkingu af ýmsum sviðum samfélagsins og margvíslega menntun. Á árinu 2016 var meðaltal stöðugilda 889 en árið 2017 var meðaltal stöðugilda 830. Stöðugildum hjá bankanum fækkaði því á árinu 2017 um 59.
Aldursdreifing er fremur jöfn. Meðalaldur starfsfólks Arion banka er 41,5 ár. Meðalstarfsaldur er 10,2 ár en jafnframt er fjöldi starfsfólks sem hefur starfað hjá bankanum og forverum hans í mun lengri tíma eða allt að 45 ár.
Fræðsla og starfsþróun
Starfsfólk er hvatt til að sýna frumkvæði í að viðhalda og bæta við þá þekkingu og hæfni sem er nauðsynleg til að þróast og þroskast í starfi.
Rík áhersla er lögð á að styrkja og þróa þekkingu og hæfileika starfsfólks með markvissri fræðslu og endurmenntun. Boðið er upp á fjölbreytt framboð námskeiða og fræðslufunda með það að markmiði að efla og þróa starfsfólk í starfi. Á árinu var haldið áfram vinnu við innleiðingu á rafrænu fræðslukerfi fyrir starfsfólk Arion banka til að auka við fjölbreytni námsleiða og tryggja að viðeigandi fræðsla sé í boði á þeim tíma sem hentar hverjum og einum. Lögð er áhersla á að starfsfólk fái tækifæri til að efla faglega og persónulega hæfni sína auk þess sem krafa er gerð um að starfsfólk hafi haldgóða þekkingu á þeim lögum og reglum sem lúta að hlutverki þess. Starfsfólk er hvatt til að sýna frumkvæði í að viðhalda og bæta við þá þekkingu og hæfni sem er nauðsynleg til að þróast og þroskast í starfi. Fræðslustarfið er í anda þeirrar umbótastefnu sem unnið er eftir, þ.e. að vilja gera betur í dag en í gær. Þá var á árinu einnig hafin undirbúningsvinna sem miðar að því að efla þjónustumenningu í bankanum. Innleiðingin mun m.a. byggja á innviðum sem innleiddir hafa verið með A plús, straumlínustjórnun, á undanförnum árum.
- Innleiðing á straumlínustjórnun hefur staðið yfir í öllum starfseiningum bankans frá árinu 2012. Á árinu 2017 var lokið við síðustu formlegu innleiðinguna og fram undan er að viðhalda þeirri umbótamenningu sem innleidd hefur verið í bankanum á undanförnum árum.
- Á árinu 2017 stunduðu 22 starfsmenn nám til löggildingar í verðbréfamiðlun, en 87 starfsmenn bankans hafa þegar lokið umræddu námi.
- Á árinu 2012 var fyrst boðið upp á nám á vegum fjármálafyrirtækja á Íslandi fyrir fjármálaráðgjafa einstaklinga, en náminu er ætlað að efla þjónustu við viðskiptavini. Í dag starfa 57 vottaðir fjármálaráðgjafar hjá Arion banka en 9 til viðbótar munu ljúka náminu vorið 2018.
- Meðalkostnaður vegna aðkeyptrar fræðslu og endurmenntunar starfsfólks var 99.000 krónur á starfsmann árið 2017.
Mannauðsstefna
Kjarninn í mannauðsstefnu bankans er að innan bankans sé réttur maður á réttum stað. Við hvetjum til og styðjum við fjölbreytni í hópi starfsfólks, þekkjum hlutverk okkar og öxlum ábyrgð á verkefnum okkar og ákvörðunum. Við vinnum út frá hornsteinum bankans og höfum samfélagsábyrgð bankans í huga í öllum okkar verkum. Við vinnum að því að skapa starfsumhverfi þar sem við getum öll vaxið í starfi og eflt kunnáttu okkar. Við leggjum hvert öðru lið við dagleg störf og stuðlum að góðum starfsanda. Hjá bankanum starfa öflugir stjórnendur með skýra framtíðarsýn fyrir sínar starfseiningar og er markvisst unnið að því að þroska leiðtogafærni þeirra.
Arion banki er tengslabanki og við leggjum okkur fram um að byggja upp sterk tengsl við viðskiptavini og samstarfsfólk okkar til langs tíma.Arion banki er þekkingarsamfélag. Við erum stolt af vinnustað okkar og vinnum stöðugt að því að bæta árangur okkar og þjónustu við viðskiptavini. Arion banki er tengslabanki og við leggjum okkur fram um að byggja upp sterk tengsl við viðskiptavini og samstarfsfólk okkar til langs tíma. Við vinnum af fagmennsku og leitumst við að hugsa í lausnum. Við sýnum sveigjanleika, framsækni og áræðni í öllum okkar verkum.
Stefna og framtíðarsýn mannauðs
Mannauður er stefnumiðaður samherji sem styður stefnu bankans með áherslu á leiðtoga, starfsþróun, frammistöðu, velferð starfsfólks og umbótamenningu. Mannauður veitir ráðgjöf og stuðning við val á starfsfólki, auk þess að efla leiðtogafærni og hæfni starfsfólks. Mannauður styður við starfsþróun, hvetur til stöðugra umbóta og aukinnar starfsánægju. Hlutverk mannauðs er að tengja saman fólk og lykilferla, með upplifun viðskiptavina að leiðarljósi.
Jafnréttismál
Arion banki hefur sett sér skýra stefnu um að tryggja jöfn tækifæri og kjör starfsfólks af báðum kynjum. Hvers kyns mismunun á grundvelli kynferðis er í andstöðu við jafnréttisstefnu bankans sem og jafnréttislög. Bankastjóri ber ábyrgð á framgangi jafnréttismála innan bankans en í hans umboði starfar jafnréttisnefnd skipuð fulltrúum starfsfólks.
Arion banki starfar eftir aðgerðaáætlun í jafnréttismálum. Markmið áætlunarinnar er að stuðla að jafnri stöðu og jöfnum tækifærum starfsfólks óháð kyni. Áætlunin tekur til víðtækra þátta eins og réttar til starfa, kjara, starfsþróunar og setu í nefndum og starfshópum. Verkefnum jafnréttisnefndar er skipt upp í átta efnisflokka: Launajafnrétti, jafnrétti í nefndum, laus störf, vinnuhópar, starfsþjálfun og endurmenntun, jafnréttisfræðsla, samræming fjölskyldu- og atvinnulífs, einelti og kynbundin/kynferðisleg áreitni.
Frá árinu 2014 hefur bankinn verið aðili að Jafnréttissáttmála UN Women og UN Global Compact. Jafnréttissáttmálinn er alþjóðleg yfirlýsing og samkomulag á vegum Sameinuðu þjóðanna sem fyrirtæki og stofnanir geta haft að leiðarljósi við innleiðingu ábyrgra starfshátta, óháð landi og atvinnugrein, og snúa viðmiðin fyrst og fremst að kynjajafnrétti.
Arion banki er jafnlaunavottaður og hlaut fyrst Jafnlaunavottun VR á árinu 2015. Arion banki varð þar með stærsta og fjölmennasta fyrirtækið til að hljóta vottunina og jafnframt fyrsti íslenski bankinn.
Arion banki er jafnlaunavottaður og hlaut fyrst Jafnlaunavottun VR á árinu 2015. Arion banki varð þar með stærsta og fjölmennasta fyrirtækið til að hljóta vottunina og jafnframt fyrsti íslenski bankinn. Jafnlaunavottun VR felur í sér ítarlega úttekt á launum starfsfólks, starfaflokkun og öðrum þáttum sem hafa áhrif á kjör.
Stefna bankans gegn einelti, áreitni og ofbeldi var uppfærð á árinu 2017. Við leggjum áherslu á að samskipti á vinnustaðnum einkennist af gagnkvæmri virðingu og líðum ekki óæskilega hegðun af neinu tagi. Einn af hornsteinum bankans er að koma hreint fram. Allt starfsfólk á að láta sig varða ef það upplifir óæskilega hegðun gagnvart samstarfsfólki sínu með því að upplýsa stjórnendur um óæskilega hegðun á vinnustaðnum.
Eineltisteymi hefur umsjón með stefnu bankans gegn einelti, áreitni og ofbeldi. Til staðar er ferli til að taka við ábendingum frá starfsfólki um óæskilega hegðun. Þá er til staðar formlegt matsferli sem er framkvæmt af óðháðum aðila auk þess sem aðgerðaáætlun er til staðar til að sporna gegn óæskilegri hegðun.
Jafnlaunastefna
Arion banki fylgir lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008, sem og öðrum reglum og lögum um að konum og körlum sé ekki mismunað og að einstaklingar skuli fá greidd jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf.
Til þess að styðja við jafnlaunastefnuna fer bankinn eftir íslenska staðlinum ÍST 85:2012 um jafnlaunakerfi en samkvæmt staðlinum skulu launaviðmið vera fyrirfram ákveðin og hvorki fela í sér beina eða óbeina kynbundna mismunun, né heldur mismunun á grundvelli annarra þátta svo sem kynþáttar, kynhneigðar, trúarbragða eða þjóðernis. Stefna þessi skal ná til alls starfsfólks.
Bankinn stóðst tvær úttektir á árinu sem felur í sér staðfestingu á að bankinn starfi í samræmi við jafnlaunastaðal. Útskýrður launamunur lækkaði á milli ára úr 3,7% í 2,9% en markmið bankans var að útskýrður launamunur myndi fara undir 3% á árinu 2017.